Lykilorðið er liðið hans pabba, allt með litlum stöfum.
Ég er mættur á svæðið. Ég kom í heiminn 16. nóv. '06 klukkan 00:11 og var 13,5 merkur og 49 cm. Fæðingin gekk bara svaka vel, ég að vísu var smá fastur en mamma og pabbi eru ekkert smá stolt af mér því ég stóð mig víst eins og hetja. Mamma mín heitir Martha Hermannsdóttir og er tannlæknir og pabbi heitir Heimir Örn Árnason og er kennari. Við erum nýflutt til Akureyrar og okkur finnst alveg æðislegt að vera komin aftur heim.






Þegar barn í sporðdrekamerkinu lítur dagsins ljós beinast öll augu að því. Og barnið heldur þeirri athygli í langan tíma því það þarf mikla athygli. Foreldrar mega búast við því að heyja valdabaráttu við litla sporðdrekann því hann ætlast oftar en ekki til þess að pabbi og mamma séu boðin og búin þegar hann þarfnast einhvers (ekki 5 mínútum síðar). Þetta er kraftmikið barn og foreldrar þurfa að vera á verði því þau eru snillingar í að fá fólk til að snúast í kringum sig og nota til þess alls kyns kænskubrögð. Uppeldi sporðdrekans getur skipst í tvö horn því þó hann sé ráðríkur, skapstór og þrjóskur getur hann einnig verið blíður og elskulegur. Það borgar sig ekki að skipa honum fyrir eða ætla að ráðskast með hann. Þó slíkar uppeldisaðferðir séu óhentugar fyrir öll börn geta afleiðingarnar orðið sérstaklega slæmar þegar sporðdrekinn á í hlut. Hann getur lokað á umhverfið, dregið sig inn í skel og orðið stífur og jafnvel árásargjarn. Foreldrar þurfa að fylgjast með tilhneigingu litla drekans til að byrgja inni reiði. Best er að fá hann til að opna sig með því að tala við hann í ró og næði. Sporðdrekar eru mjög næmir á umhverfi sitt og því er mikilvægt að umgangast þá með varúð og hreinskilni. Sporðdrekanum er illa við yfirborðsmennsku og fals og missir auðveldlega álit á þeim sem ekki koma heiðarlega fram við hann.



Andrea Marý & Elísa Lana
Aníta Mist og Aron Freyr
Arnar Elí
Arnar Pálmi og Aníta Rakel
Arnór Snær, Benedikt Gunnar og Katla Margrét
Baldvin Freyr og Sóley María
Bessi Gunnar
Bjarney Hilma draumastelpa
Björn Ívar og Stefan Freyr
Borgar Elí
Bríet Klara
Maron Dagur
Dagbjört Lilja
Dagur Orri
Edda Júlíanna
Kristian Óliver og Ágúst Arnar
Kristófer Már, Anton Ingi og Hermann Ágúst
Magnús Dagur
María Líf
Nóel Atli
Olga María og Rakel Eva
Óskar Arnór
Haukur Logi
Haukur Víðir Ottoson
Ragnheiður Sara Morthens
Ronja og Alís
Sonja Kristin
Sólveig frænka
Snorri og Elmar
Stefán Þór
Steindor Ingi
Rebekka Sunna
Regína Margrét
Sævar Leó
Thelma Melsted
Þorbjörn Egill
hr. Viðarsson
Viktor Bjarki



Þú ert gestur nr. 44629